Umsagnir
Hvað segja þau sem hafa komið í Ljóshof?
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
"Ég fór í Cranio hjá Lilju í Ljóshofi eftir að hafa lengi verið með verki sem lýstu sér sem seyðingi niður í fótinn. Strax eftir tímann hvarf verkurinn og nú, tveimur mánuðum síðar, hefur hann ekki komið aftur. Ég er ótrúlega þakklát fyrir hjálpina og mæli eindregið með tíma hjá Lilju."
Hulda
Heilun með skilaboðum
„Þetta eru yndislegir tímar hjá Lilju í heilun. Ég veit ekki hvað hún gerir, en mér líður alltaf eins og ég sé 10 kg léttari þegar ég fer frá henni, með léttari orku. Mæli 100% með Lilju.“
Heiða
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
"Elska að koma til Lilju. Hún hjálpar mér svo mikið og ég finn alltaf mun eftir tímana. Ég slaka miklu betur á og finn meira jafnvægi í líkamanum. Hún hefur líka unnið ótrúlega vel með stífleika í kjálka hjá mér. Mæli 100% með henni“
Elísabet
Hugleiðsla
"Takk fyrir mig Lilja. Yndislegt námskeið í notalegu og öruggu umhverfi. Lilja leiðbeinir og kennir mismunandi leiðir í hugleiðslu til að hjálpa hverjum og einum að finna þá leið sem hentar. Takk kærlega fyrir mig"
Jóhanna
Hugleiðsla
"Þetta námskeið var skemmtilegt og nauðsynleg viðbót til að dýpka mitt andlega ferðalag. Takk fyrir mig elsku Lilja."
Aðalheiður