Lilja Guðjónsdóttir
Ég stofnaði Ljóshof í janúar 2022 þegar ég hóf að deila innsæi og miðlun á samfélagsmiðlum.
Ég menntaði mig á sviði viðskipta og stóran hluta starfsævinnar vann ég við viðskipti og skrifstofustörf. En samhliða þeim ferli hefur áhugi minn á því sem gerist innra með okkur alltaf verið til staðar. Þegar ég lauk jógakennaranámi árið 2009 tók ég að feta nýja leið og síðan þá hef ég stöðugt dýpkað þekkingu mína á ólíkum leiðum til vellíðanar, sjálfsþekkingar og innri tengingar
Ég er höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili (CranioSacral) með framhaldsmenntun frá Upledger-stofnuninni. Ég hef starfað sem aðstoðarkennari hjá Upledger og tekið þátt sem meðferðaraðili í tveimur meðferðarverkefnum, þar á meðal verkefni fyrir særða hermenn í Úkraínu. Ég hef lokið sjö námskeiðum hjá Upledger.
Í heilunarvinnu minni nýti ég bæði Reiki og miðlunartækni. Heilun er að skapa rými þar sem hægt er að hlusta á það sem býr innra með þér og taka á móti því sem kemur fram hverju sinni.
Hugleiðsla er mikilvægur hluti af starfi mínu og mínu eigin lífi.
Þegar ég hugleiði finn ég betur tenginguna við sjálfa mig og það sem ég kalla „Ég er“ – I AM. Fyrir mér er það staðurinn þar sem ég þarf ekki að vera að gera neitt eða ná einhverju ákveðnu, heldur einfaldlega vera.
Þetta er kjarninn í því sem ég geri hjá Ljóshofi. Að skapa rými þar sem þú getur staldrað við, hlustað inn á við og tengst þér og því sem býr innra með þér – hvort sem það er í gegnum meðferð, heilun, námskeið eða hugleiðslu.
Vertu velkomin að hafa samband ef þú vilt vita meira um Ljóshof eða þær leiðir sem ég býð upp á.
Kynntu þér það sem Ljóshof
hefur upp á að bjóða
Finndu hugleiðslur, meðferðir og fræðslu sem henta þér og þinni vegferð.
Hugleiðslur í áskrift
Hallaðu þér aftur og komdu þér vel fyrir
Gefðu þér stund til að staldra við og tengjast þínu innra. Hér finnur þú leiddar hugleiðslur sem þú getur hlustað á hvenær sem þér hentar. Þú ræður ferðinni og getur farið í þitt eigið ferðalag inn á við.
Einkatími með Lilju
Viltu eiga samtal í næði og fá persónulega leiðsögn? Sendu mér tölvupóst til að panta tíma.
Prófaðu frítt
Sérvaldar hugleiðslur sem þú færð að hlusta á alveg frítt.
Vertu með á póstlistanum
Fáðu fréttir, fróðleik og innblástur sem hjálpar þér að staldra við og tengjast þínu innra