Bóka tíma

Hugleiðsla fyrir byrjendur

Langar þig að finna meiri ró, tengjast þér betur og læra að hugleiða?

Á 4 vikna námskeiði lærir þú grunninn að hugleiðslu og færð verkfæri sem þú getur nýtt í daglegu lífi.

💫 Að róa hugann og beina athyglinni
💫 Að tengjast líkamanum og sjálfum þér
💫 Að takast á við algengar áskoranir í hugleiðslu
💫 Að skapa þér reglulega hugleiðsluvenju

Þetta færð þú:

👉 4 vikna leiðsögn með Lilju
👉 3 hugleiðslur á viku – alls 12 hugleiðslur
👉 Kennsla og hugleiðsla í beinni á Zoom á þriðjudögum kl. 18:00
👉 Ný hugleiðsla á hverjum fimmtudegi og laugardegi
👉 Aðgang að upptökum af öllum tímum í mánuð eftir að námskeiði lýkur

Næsta námskeið hefst 19. janúar til 13. febrúar 2027

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um námskeiðið eða skrá þig, sendu mér tölvupóst á [email protected].

Verð: 44.400 kr

Sendu mér skilaboð