Hvað ertu að sækja í hugleiðslu?
Hvað ertu að sækja í hugleiðslu?
Ég vaknaði klukkan 6 í morgun og sá fyrir mér hönd sem teygði sig inn í hring sem ég hafði verið að búa til í Canva fyrir nokkrum dögum.
Hönd sem fór inn í hringinn.
Og þá kom þessi spurning:
Hvað ef þú gætir farið inn í þinn innri heim og fundið þar nákvæmlega það sem þú þarft í dag?
Hvað væri það?
Væri það gamlar hugsanir?
Síendurtekin mynstur sem eru ekki lengur að gera þér gott?
Eða ný hugmynd, skýrleiki, staðfesting, huggun, innblástur – eða eitthvað sem þú hefur gleymt að þú býrð yfir?
Hvað ef þú gætir sótt það með þér hingað og nú?
Mér datt í hug þegar við fórum í nammibúðina sem krakkar.
Við fengum að velja okkur nokkra sælgætismola sem fóru í grænan poka. Ég gekk út úr búðinni, sæl og glöð, með pokann í hendinni.
Ég opnaði hann ekki fyrr en ég var komin út.
Ég væri til í að sjá svipinn á mér þá – brosandi út að eyrum.
Hvað ef ég gæti sótt þessa tilfinningu og komið með hana hingað, í dag?
Eins og ég héldi á ósýnilegum poka.
Í honum væri ekki nammi heldur léttleiki, gleði, kærleikur og orka.
Eitthvað sem hjálpar mér að vera meira hér og nú.
Meira í hjartanu og minna í hávaðanum í huganum.
Kannski er það svolítið þannig sem hugleiðslan virkar.
Þú ferð inn á við og stundum kemur eitthvað upp sem þú áttir ekki von á.
Kannski skýrleiki.
Kannski ný hugmynd.
Kannski tilfinning sem þú hafðir gleymt.
Eða bara þessi litla gleði sem lætur þig ganga út úr hugleiðslunni með bros á vör – eins og barn með nokkra sælgætismola í pokanum.
Þú þarft ekki stóran poka.
Kannski þarf bara nokkra mola.
En hvað væri í þínum poka í dag?
Vertu með á póstlistanum
Fréttir, fróðleikur og innblástur sem hjálpa þér að staldra við og tengjast þínu innra
Enginn óþarfa póstur – Þú getur alltaf hætt áskrift hvenær sem er